Útirými eignarinnar gegna lykilhlutverki í búsetugæðum Vorbrautar 14. Þeir sem búa á jarðhæð eiga þess kost að njóta dvalar á sérafnotareitum sem skapa nálægð og góð tengsl við gróskumikið umhverfið. Sömuleiðis skapa svalir og þaksvalir efri hæða tækifæri til að njóta bæði fersks lofts og óviðjafnanlegs útsýnis. Á hluta þaksins er komið fyrir gróðurþekju sem mildar yfirbragð mannvirkisins og tónar fallega við náttúruleg einkenni holtsins. Lóðin nýtir jafnframt blágrænar lausnir til ofanvatnsmeðhöndlunar sem fellur afar vel að snyrtilegri ásýnd svæðisins. Þannig stækka útirýmin heimilið og styrkja lífsgæðin með því að færa umhverfið nær íbúum.

  • Sérafnotareitir
  • Gróðurþekja
  • Blágrænar lausnir
  • Ofanvatnsmeðhöndlun